Gaflaraleikhúsið er hópur atvinnufólks sem hefur rekið lítið leikhús við Víkingastræti í Hafnarfirði frá 2011. Að hópnum standa Ágústa Skúladóttir, Björk Jakobsdóttir, Gunnar Helgason og Lárus Vilhjálmsson en þau eru öll með mikla reynslu á sviði leiklistar og menningarlífs. Gaflaraleikhúsið er lítið leikhús fyrir 220 áhorfendur, með áhorfendapöllum, stólum og ljósa- og hljóðbúnaði. Hópurinn hefur á síðustu árum framleitt 8 ný íslensk verk  bæði í samstarfi við aðra og á eigin spýtur. Verkin eru Ævintýri Múnkhásens, Blakkát, Hjartaspaða,Unglinginn, Heila Hjarta Typpi, Konubörn, Bakaraofninn, Góði Dátinn Svejk og vinur hans og Stefán rís. Eitt erlent verk hefur fengið að fljóta með en það var verðlaunaverkið Hvítt frá Skotlandi sem er fyrir yngstu börnin. Auk þessa hafa danshópar, erlendir leikhópar og skólaleikhús fengið inn í húsinu með fjölda sýninga.  Leikhúsið hefur einnig séð um leiklistarkennslu í unglingadeildum grunnskólanna í Hafnarfirði og að kennir á annað hundrað nemendum ár hvert. Fjöldi sviðslistafólks hefur starfað með hópnum bæði í leikverkefnum og eins sem kennarar í leiklistarskóla leikhússins. Leikhúsið hefur einnig síðustu ár fóstrað leikfélag Flensborgarskóla og aðstoðað það á alla máta til að koma upp sýningum.
Listræn sýn Gaflaraleikhúsins er að skapa kraftmiklar,fyndnar, harmrænar, lifandi og sjónrænar leiksýningar úr efnivið sem gefa leikurum og listrænum stjórnendum mikið listrænt svigrúm og að ný íslensk verk verði í forgrunni verkefnavals. Verkin eiga að spegla samfélagið á ferskan og ögrandi hátt. Leikhúsið vill líka vera samfélagsleikhús með sterku sambandi við fólkið í nærumhverfinu sem ýtir undir aðsókn í leikhúsið.
Leikhúsið hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á kennslu í leiklist fyrir börn og ungmenni með samstarfi við grunnskóla Hafnarfjarðarbæjar og með sjálfstæðum námskeiðum. Í framhaldi af þessu hefur hóf leikhúsið starfsemi framtíðardeildar sem framleiðir leikverkefni með ungu fólki  á aldrinum 15-25 ára. Verkefnið er hugsað sem framhald af skólastarfinu og vera vettvangur fyrir ungmenni sem hafa mikla getu sem höfundar og leikarar til að þroskast og vera brú yfir í framhaldsnám í sviðslistum. Okkar skoðun er sú að til að leikhúsið nái til ungra áhorfenda  verði verkefnin að vera í augnhæð og byggja á þeirra upplifun af samfélaginu. Við höfum þá von í brjósti að byggja upp öflugt sjálfstætt leikhús sem þorir að takast á við verkefni sem ná til áhorfenda sem erfitt er að fá í leikhús, eins og t.a.m. ungmenni á aldrinum 15-25 ára.
Fyrir nokkrum árum tók Gaflaraleikhúsið þátt í umsókn til Menningarstyrkja Evrópska Efnahagssvæðisins (EEA sjóðnum) með Menningarhúsinu  í Wroclaw í Póllandi, Bíó Paradís og Myndlistarskóla Reykjavíkur um verkefni  sem heitir „Ísland og Pólland gegn útilokun frá menningu“ og fjallar um að sýna leikverk með hljóðlýsingu (audio description) fyrir blinda og sjónskerta.  Fyrir tveimur árum  fékk verkefnið 30 milljón króna styrk frá EES sjóðnum og var fyrsta verkefnið sýnt í Bíó Paradís á síðasta ári.  Haustið 2014 var pólski einleikurinn Líkið mitt eftir Boguslav Kierc sýnt í Gaflaraleikhúsinu með hljóðlýsingu. Árið 2015 fer síðan Unglingurinn frá Gaflaraleikhúsinu til Wroclaw sömu erinda.  Leikhúsið er nú í samstarfi við nokkur leikhús og leikhópa í Finnlandi, Litháen, Rúmeníu, Þýskalandi, Portúgal og Ítalíu um umsókn úr Creative Europe sjóði Evróðusambandsins um verkefni sem kallast „The Many Faces of Europe“ þar sem hópur listamanna frá öllum löndunum mun vinna að sameiginlegri sýningu um jaðarhópa í Evrópu og verður linsunni sérstaklega beint að Roma fólki (sígaunum) en leikstjóri sýningarinnar er Roma maður. Alþjóðlegt samstarf listamanna er nauðsynlegt til þess að efla og þróa listræna þróun í hverju landi. Heimskur er heimakær maður og við hjá Gaflaraleikhúsinu teljum að alþjóðlegt samstarf sé hópnum nauðsynlegt til að eflast og þroskast..
Öflugt samstarf við aðra sjálfstæða sviðslistahópa er einn af hornsteinum leiklistarstarfs í Gaflaraleikhúsinu. Það er staðreynd að það er ekki mörg í hús að venda fyrir sviðslistafólk á Íslandi og þegar litlir fjármunir eru  til framleiðslu hjá sjálfstæðum hópum er samstarf við aðra oft eina leiðin til að koma verkefnum á koppinn. Leikhúsið átti t.a.m gott samstarf við Skýjasmiðjuna sem gerði  þeim kleyft að setja upp sýninguna Hjartaspaða hjá okkur og nokkrir litlir danshópar hafa sýnt í húsinu.
Í nýjum samningi við Hafnarfjarðarbæ sem var gerður var síðasta ár var leikhúsinu tryggður samastaður í húsnæðinu við Víkingastræti og nokkuð fjármagn til verkefna þar til árið 2020. Hópur fékk svo eins árs samning við Menntamálaráðuneytið um tvö verkefni sem eru ný gamanverk eftir Björk Jakobsdóttur og Karl Ágúst Úlfsson. Ætlunin er einnig að  byggja upp Framtíðardeildina enn frekar innan leikhússins.
Við höfum vilyrði fyrir fjármunum frá Hafnarfjarðarbæ í verkefnin og  stuðning frá Leiklístarráði og síðast en ekki síst frá áhorfendum. Sá stuðningur gerir  þessum 14 sviðslistamönnum sem hafa starfað innan Gaflaraleikhússins og hafa sannarlega lagt sig fram í íslensku leiklistarlífi kleyft að halda áfram að byggja upp nýtt og spennandi leikhús í Hafnarfirðinum
Framtíðarmarkmið Gaflaraleikhússins er að byggja upp öflugt atvinnuleikhús á Íslandi  sem leggur áherslu á góðar og vandaðar sýningar fyrir unga áhorfendur og skellir inn á milli flottum sýningum fyrir fullorðna

Leave a Review

Price
Location
Staff
Services
Food
Publishing ...
Your rating has been successfully sent
Please fill out all fields
Captcha check failed